• Fender Telecaster

Skólaslit tónlistarskóla

  • 28.5.2019, 17:30

Tónlistarskóla Bolungarvíkur verður slitið með formlegri athöfn þriðjudaginn 28. maí kl. 17:30 í sal skólans. 

Á dagskrá eru ávörp, afhending skírteina og tónlistarflutningur.

Allir eru hjartanlega velkomnir á skólaslitin.

Innritun í Tónlistarskóla Bolungarvíkur stendur yfir dagana 22.-28. maí. 

Innritun í tónlistarnám fer fram með rafrænum hætti á heimasíðu skólans. Athugið að allir þurfa að sækja um, bæði nýir og eldri nemendur og einnig þeir sem eru á biðlista.

Sækið um sem fyrst - takmörkuð pláss!