Saga skólans

Tónlistarskóli Bolungarvíkur var settur í fyrsta sinn 1. október 1964. 

Tónlistarskóli

Skólastjórar tónlistarskólans frá upphafi:

  • 1964-1988 Ólafur Kristjánsson
  • 1988-1994 Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir
  • 1994-1998 Hannes Baldursson
  • 1998-2003 Soffía Vagnsdóttir
  • 2003-2005 Kristinn Jóhann Níelsson
  • 2005-2006 Mariola Kowalczyk
  • 2006-2010 Hrólfur Vagnsson
  • 2010 -Selvadore Rähni, nuverandi skólastjóri

    Áður hafði Sigríður Norðquist sem starfaði þá sem organisti við Hólskirkju leiðbeint nemendum með stuðningi Hólshrepps um nokkurra ára skeið.

Þá um sumarið eða þann 10. júní 1964 hafði Tónlistarfélag Bolungarvíkur verið stofnað. Helsta markmið og tilgangur félagsins var einmitt að stofna og reka tónlistarskóla, ásamt því að efla almennt tónlistarlíf í Bolungarvík og fá innlent og erlent listafólk til tónleikahalds í bænum. Fyrir stofnun félagsins og skólans hafði Sigríður Norðquist, organisti við Hólskirkju í Bolungarvík, leiðbeint tónlistarnemendum með stuðningi Hólshrepps um nokkurra ára skeið.

Fyrsti formaður Tónlistarfélags Bolungarvíkur var Benedikt Bjarnason framkvæmdastjóri og gegndi hann forystu bæði í félaginu og stjórn skólans fyrstu árin. Örstutt handskrifað bréf til Benedikts frá Sigurði Bjarnasyni frá Vigur, alþingismanni, dagsett 6. febrúar 1964, varpar nokkru ljósi á undanfara stofnunar félagsins og skólans. 

Þar segir:

Góði vinur, sendi þér hér með lögin um stuðning við tónlistarskóla. Nú verðið þið að koma ykkar skóla á laggirnar fyrir haustið. Fimmtán þúsund króna framlagið til Ólafs Kristjánssonar verðum við að fá til bráðabirgða með víxilláni, sem síðan greiðist af framlagi ríkissjóðs til skólans. Ef þið sendið mér víxil skal ég selja hann.

Í byrjun skólastarfsins fyrir fjórum áratugum voru eftirtalin hljóðfæri keypt til skólans fyrir tilstyrk Hólshrepps (þá hafði sveitarfélagið ekki enn öðlast kaupstaðarréttindi): Trompett, klarinett, þverflauta og básúna, eitt af hverri tegund.

Fyrsta skólaárið voru 30 nemendur í skólanum. Þar af lærðu 22 á píanó, 1 á harmoníum, 3 á blásturshljóðfæri (saxófón og klarinett) og 4 á harmoniku. Auk þess fór fram kennsla í tónfræði. Eitt foreldrakvöld var haldið og auk þess almennir tónleikar við skólaslit.

Haustið 1964 hófst eiginlegt starf skólans. Ólafur Kristjánsson eða Óli málari var ráðinn fyrsti skólastjórinn og gegndi því starfi til loka árs 1988. Skólinn var stofnaður fyrir tilstilli Tónlistarfélags Bolungarvíkur, og starfaði á ábyrgð þess fram til ársins 1981, að bæjarsjóður Bolungarvíkur tók yfir reksturinn hvað varðaði launagreiðslur til skólastjóra og kennara. 

Árið 1989 tók síðan Bolungarvíkurkaupstaður að öllu leyti við rekstri skólans að ósk Tónlistarfélagins. 

Starfsemi skólans fór fyrst og fremst fram á heimilum skólastjóra og kennara allt fram til ársins 1989 þegar skólinn fékk eigið húsnæði til umráða. Það var hluti af húsnæði við Hafnargötu 37. Þar voru þrjár kennslustofur en auk þess hafði skólinn afnot af kennslustofu í Grunnskólanum til hópkennslu. Árið 1993 var starfsemi skólans svo flutt í það húsnæði sem hýsir hann í dag. Það var tekið í notkun í tveimur áföngum. Það er gamli grunnskólinn við Skólastíg 3. Elsti hluti hússins tilheyrir þó ekki skólanum enn sem komið er. 

Í tilefni af 60 ára afmæli skólans, stutt yfirlit um mikilvægustu hlutina sem Tónlistarskólinn er búin að gera síðan 2010 til dagsins í dag.

Haustið 2011 byrjaði Tónlistarskólinn með popp söngnám. Tuuli Rähni sér um kennsluna.

Árið 2013 skipulagði tónlistarskólastjóri Selvadore Rähni rokktónleika fyrir grunnskólakrakka í Bolungarvík og nágrenni sem var gert fyrsta skipti á Vestfjörðum.

Árið 2014 skipulagði tónlistarskólastjóri Selvadore Rähni afmælisárið fyrir tónlistarskólann og 17 tónlistarmenn fluttu tónlist -bæði popp og klassíska og að lokum var einnig haldið ball.

Árið 2014, í tilefni af 50 ára afmæli skólans gaf skólastjóri út geisladisk. Diskurinn er tvöfaldur, á fyrri diskinum eru upptökur frá nemendum á degi tónlistarskólanna, en á seinni diskinum eru upptökur frá 50 ára afmælistónleikum tónlistarskólans.  Alls eru á diskunum 56 atriði.

Árið 2013-2017 var farið í miklar endurbætur á húsnæði Tónlistarskólans. Tekin voru gömul teppi og dúkar af gólfunum á efri hæð hússins og í staðinn var sett parkette.Auk þess var opnað á milli húsanna þannig að innangengt er á milli Sprota og annars kennslurýmis.

Húsnæðið er orðið ágætt. Í húsinu eru 5 kennslustofur ásamt Sprota sem er lítill salur sem notaður er fyrir samæfingar og fyrir trommu-og söngkennslu. Kennt er á klarínett, flautu, blokkflautu, saxofón, harmoniku, píanó, trommur, klassískan gítar, rafgítar og bassa, fiðlu, tónfræði og söng.

Tónlistarskóli Bolungarvíkur var fyrsti tónlistarskóli landsins til að taka tónlistarforritið Meludia til notkunar við kennslu í tónfræði árið 2016.
Meludia er tölvuleikur sem miðar að því að auka færni notenda forritsins í tónlist og tónlistarfræðum. Forritið hentar öllum, allt frá byrjendum til atvinnutónlistarfólks en byggir fyrst og fremst á hlustun og greiningu og eflir tónlæsi notendanna.

Tónlistarskólinn er alltaf búinn að vera í góðu samvinnu við markaðhelgina:
Skólinn er búinn að halda söngnemenda tónleika og einnig söngnámskeið í tengslum við markaðhelgina sem var opin öllum. Í mörg ár var Tónlistarskóli Bolungarvíkur að halda og skipuleggja söngvakeppni sem var opin öllum í Bolungarvík en nemendur tónlistarskólans sigruðu í hvert skipti.

Einnig hafa tónlistarskóla nemendur unnið til verðlauna mörgum sinnum í söngvakeppni Samfés á Vestfjörðum.

Skólinn hefur tekið þátt mörg sinnum taka þátt í Nótunni-Uppskeruhátíð tónlistarskóla. Það voru Tónlistarskóla Bolungarvíkur nemendur Mariann Rähni og Oliver Rähni sem lenti 4 sinnum á fyrsta sæti á svæðistónleikunum hafa fengið sérstöku viðurkenninguna í Hörpu í Reykjavík.

Frá árinu 2019 heldur Tónlistarskóla Bolungarvíkur, í samvinnu við Bolungarvíkurkaupstað, tónlistarhátíðina “Miðnætursól”. Tvisvar sinnum komu framheimsklassa hljómsveitin Kyiv Solists kom fram ásamt einleikurunum héðan: Selvadore Rähni- klarínett og Oliver Rähni-píanó.
Árið 2022 voru tónleikarnir styrktartónleikar fyrir Úkraínu og fór tónlistarhátíðin fram í Bolungarvík og í Hörpu í Reykjavík. Forseti Íslands var m.a. viðstaddur og mjög ánægður með tónleikana.

Einnig var lúðrasveit frá Falset, Katalóníu að halda tónleika í Félagshemilinu og fyrir utan Félagsheimilið. 

Á síðustu 5 árum náðu tónlistarskólanemar háum árangri á prófum: frá 9,0 til 9,7 og 10,0. 

Oliver og Mariann Rähni- þau voru fyrstu nemendur í sögu Tónlistarskóla Bolungarvíkur að ljúka framhaldspróf við tónlistarskóla Bolungarvíkur. Oliver tók framhaldspróf í píanóleik árið 2022 sem er fyrsta skiptið í sögu tónlistarskólans og fékk 10,0. Einnig hélt hann stórglæsilega tónleika í Hömrum á Ísafirði. Mariann Rähni tók framhaldspróf í píanóleik árið 2024 og einnig inntökupróf við Listaháskóla Íslands. 

Frá 2010 til í dag, hafa Tónlistarskóla Bolungarvíkur nemendur spilað í Sparisjóðnum vegna afhendingar á skírnargjöfum, fyrir kvennfélagið Brautina í Félagsheimilinu, á fyrsta maí fyrir Verkalýðsfélagið, á 17. júni. Einnig hefur verið spilað fyrir gamla fólkið í safnaðarheimili og þar voru líka haldnir jólatónleikar, miðsvetrartónleikar, vortónleikar og tónleikar á dag tónlistarskólanna. Tónlistarskólinn er einnig búinn að halda hljóðfærakynningu fyrir leik- og grunnskólakrakka.

Tónlistarskóli er stöðugt að bæta við hljóðfærum eftir því sem þörf krefur. Frá 2014-2022 voru keypt tvo flygla: Kawai og Boston. Styrktaraðilarnir voru Bolungarvíkukaupstaður, Sparisjóður Bolungarvíkur og Jakob Valgeir ehf., Endurskoðun Vestfjarða, Tónastöðin.

Starfsemi Tónlistarskólans er mikilvægur hluti af lífinu í Bolungarvík.

Stjórn og skipulag

Tónlistarskólinn er rekinn af Bolungarvíkurkaupstað. Hann heyrir undir fræðslumálaráð sem síðan heyrir undir bæjarstjórn. Reglulegir fundir eru haldnir með fræðslumálaráði varðandi stjórn og rekstur skólans og gott samkomulag er við bæjaryfirvöld. 

Í öllu starfi skólans er tekið eindregið tillit til starfsemi grunnskólans. 

Kennarar frá upphafi

  • Anna Kjartansdóttir
  • Arna Gísladóttir
  • Davíð Ólafsson
  • Elzbieta Kowalczyk
  • Gísli Magnússon
  • Guðmundur Norðdahl
  • Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir
  • Gunnar Björnsson
  • Gyða Halldórsdóttir
  • Hannes Baldursson
  • Haraldur Bragason
  • Harpa Henrýsdóttir
  • Hrólfur Vagnsson
  • Jon Gunnar Biering Margeirsson
  • Jón Hallfreð Engilbertsson
  • Janusz Frach
  • Karl Hallgrímsson
  • Karl Sighvatsson
  • Kristinn Jóhann Níelsson
  • Kristján Þór Bjarnason
  • Leslaw Szyszko
  • Mariola Kowalczyk
  • María Kyriakou
  • Martha Hlín Magnadóttir
  • Málfríður Sigurðardóttir
  • Michael A. Jones
  • Ólafur Kristjánsson
  • Oliver Rähni
  • Ralph Hall
  • Selvadore Rähni, nuverandi skólastjóri
  • Sigríður Norðquist
  • Soffía Vagnsdóttir
  • Tómas Guðni Eggertsson
  • Tuuli Rähni
  • Vadim Fyodorov
  • Zbigniew Jaremko