Trommur
Trommur eru elstu hljóðfæri í heimi.
Upprunaleg bygging þeirra hefur haldist nær óbreytt en þær voru upphaflega notaðar af trúarlegum ástæðum eða í orrustum.
Trommusett er safn slagverkshljóðfæra sem raðað er upp á þægilegan hátt þannig að einn hljóðfæraleikari geti leikið á þau öll samtímis.
Grunntrommusett samanstendur af:
- bassatrommu,
- sneriltrommu (eða snerli),
- hi-hat sem eru tvö málmgjöll sem liggja hvort á móti öðru og hægt er að opna þau og loka með fótstig sem oftast er stjórnað með vinstri fæti,
- diskum einnig kallaðir symbalar, eru einskonar diskar gerðir úr málmi,
- pákum sem eru sívalar trommur sem raðað er við hliðina á eða í kringum snerilinn, oftast eru notaðar á bilinu 0 til 5 pákur en algengast er að þær séu 2 eða 3 og
- trommustól.
1. bassatromma, 2. gólftromma, 3. snerill, 4. páka, 5. hi-hat, 6-9. diskar
Á trommusett er yfirleitt leikið með kjuðum eða bustum.
Trommusett Ringos Starrs sem hann lék á í lögum eins og
Can't Buy Me Love og I Want to Hold Your Hand