Tónfræði
Í aðalnámskrá tónlistaskóla eru eftirtalin fög:
- tónfræði,
- tónheyrn,
- hljómfræði,
- tónlistarsaga,
- formfræði og
- kontrapunktur
öll skilgreind sem tónfræðigreinar.
Tölvunám tengt tónlist telst einnig til tónfræðináms. Tónlistarskóli Bolungarvíkur er fyrsti tónlistarskóli landsins til að taka tónlistarforritið Meludia til notkunar við kennslu í tónfræði.