Rafgítar

Rafmagnsgítar er gítargerð þar sem tónninn er magnaður upp með rafseglum sem nema truflanir í segulsviði sem strengirnir valda þegar þeir sveiflast.

Ólíkt venjulegum gítörum þjónar því kassi rafmagngítars ekki þeim tilgangi að magna upp hljóð og því getur lögun hans verið með ýmsu móti.

Gibson_ES-150

Gibson ES-150 „archtop“ gítar

Rafmagnsgítar náði fyrst vinsældum á 4. og 5. áratug 20. aldar þegar stórsveitartónlist (e. big band) varð vinsæl. Til að hljómmikil blásturshljóðfærin yfirgnæfðu ekki gítarinn var nauðsynlegt að magna upp í honum hljóminn. Fyrstu rafmagnsgítararnir voru svokallaðir „archtop“ gítarar. Þetta voru stálstrengjagítarar sem höfðu einkennandi sveigða lögun á fremri fleti gítarsins og voru tengdir við magnara. Hljómur þeirra þótti eiga einkar vel við blús, jazz, sveitatónlist og ákveðnar tegundir rokks.

Fender_telecaster

Fender Telecaster

Allra fyrstu rafmagnsgítararnir voru framleiddir á 4. áratug síðustu aldar af Rickenbacker-fyrirtækinu. Les Paul, frægur gítarleikari og uppfinningamaður, hannaði fyrsta rafmagnsgítarinn með gegnheilan gítarkassa árið 1942. Hann fór í framleiðslu hjá Gibson-gítarfyrirtækinu, en kom ekki á á markað fyrr en árið 1952. Þá hafði annað hljóðfærafyrirtæki þegar komið rafmagnsgítar á markaðinn fjórum árum fyrr. Fyrirtæki Leo Fender kom svo fyrsta rafmagnsgítarnum með gegnheilan gítarkassa á almennan markað árið 1948. Gítarinn hét upphaflega Fender Broadcaster en var endurnefndur Fender Telecaster árið 1950.

Fender_stratocaster

Fender Stratocaster

Árið 1954 kom endurbætt útgáfa af Telecaster á markaðinn undir heitinu Stratocaster. Þessi gítar er enn einn eftirsóttasti rafmagnsgítarinn á markaðnum. Fjölmörg fyrirtæki hafa því brugðið á það ráð að selja eftirlíkingar af Stratocaster sem þeir gefa þá svipuð heiti.

Gibson_Les_Paul

Gibson Les Paul

Les Paul gítar Gibson-fyrirtækisins varð einnig mjög vinsæll og er enn í dag einn vinsælasti gítar heims ásamt Fender Strat. Útlit og hönnun þeirra beggja hefur haldist nánast óbreytt í 50 ár og enn endurspegla allir gegnheilir rafmagnsgítarar sem framleiddir eru þessa upprunalegu hönnun.