Klarínett
Klarínett er tréblásturshljóðfæri með sívalningslaga hljóðpípu og einfalt blað í munnstykkinu til að framkalla tóninn.
Klarínett er mjög fjölhæft hljóðfæri. Það er einkum notað í klassískri tónlist en einnig í margs konar annarri tónlist. Tónsviðið er mikið: tæplega fjórar áttundir og styrkleikasviðið einnig mjög breitt.
Nafnið er dregið af ítalska orðinu clarino, sem þýðir trompet, að viðbættri smækkunarendingunni -et, en fyrstu klarínett höfðu skæran tón líkt og trompett.
Klarínett-fjölskyldan er stór, 12 hljóðfæri talsins:
- As-sópranínóklarínett,
- Es-sópranklarínett,
- D-, C-, B-, A-klarínett,
- A-bassetklarínett,
- F-bassethorn,
- Es-altklarínett,
- B-bassaklarínett,
- Es-kontraaltklarínett og
- B-kontrabassaklarínett.
Á þeim tíma sem Mozart lifði, var líka Bassethorn í G til.
Þýskt klarínett
Tvær tegundir klarínett eru til, þýskt-klarínett og franskt-klarínett, svo kallað Böhm-klarínett.
Langalgengust þessara hljóðfæra er B-klarínett en mikill meirihluti klarínettu-nemenda byrjar að læra á það hljóðfæri.
A-klarínett er oft notað í klassískri tónlist og er því nauðsynlegt langt komnum nemendum og atvinnuhljóðfæraleikurum.
Klarínettfjölskyldan