Rafbassi
Rafbassi eða bassagítar er rafmagns-strengjahljóðfæri.
Rafbassi hefur oftast fjóra strengi en rafbassar með fleiri strengjum eru þó til. Oftast eru strengir á rafmagnsbassa stilltir í E, A, D og G (áttund neðar en fjórir dýpstu strengir gítars) en margir bassaleikarar nota aðrar stillingar.
Fender Presision
Rafbassar eru yfirleitt með þverböndum þótt bandalausir rafbassar séu einnig til.
Á búki rafbassa eru hljóðnemar sem gerðir eru úr seglum og nema þeir titring strengjanna þegar slegið er á þá. Utan um seglana er vafin spóla sem umbreytir hreyfiorku seglanna í rafstraum. Snúra er tengd frá rafbassa yfir í magnara sem magnar upp rafmerkið.
Fyrsti fjöldaframleiddi rafbassinn var Fender Precision, sem var hannaður af Leo Fender, en hann var kynntur til sögunnar árið 1951.