Innritun í nám í Tónlistarskóla Bolungarvíkur

29.5.2024

Innritun í nám í Tónlistarskóla Bolungarvíkur fyrir skólaárið 2024-2025 er hafin.
Innritun fer fram með rafrænum hætti gegnum vefsíðu skólans.

Athugð að allir þurfa að sækja um, bæði nýir og eldri nemendur, og einnig þeir sem eru á biðlista.

Það eru tvö mismunandi eyðublöð á síðunni og þeir nemendur sem vilja halda áfram í námi án breytinga geta valið styttra blaðið. Sækið um sem fyrst!